English en
  • English en
English en
  • English en
Cart 0
Deiglumór: Keramik úr íslenskum leir 1930-1970
Deiglumór: Keramik úr íslenskum leir 1930-1970
Minningarsjóður um ragnar kjartansson

Deiglumór: Keramik úr íslenskum leir 1930-1970

Regular price 7.000 kr 0 kr Unit price per
Tax included.
 Útgetandi: Minningarsjóður um ragnar kjartansson

Útgáfuár: 2021

Tungumál: Íslenska

192 bls, bundnar í pappírskilju, ríkulega myndskreytt með texta

Stærð: 27 x 20,4 cm

ISBN: 978-9935-24-831-2

 

Nánari lýsing:

Af minjum um leirlist til forna á Íslandi er fátt eitt varðveitt nema orðið deiglumór, þetta forna orð yfir leir, sem vitnar um notkun leirs á Íslandi til deiglugerðar á öldum áður. Sú saga er fallin í gleymsku, en hins vegar var notkun íslenska leirsins forsenda hinnar frjóu leirlistarsögu tuttugustu aldarinnar.

Brautryðjandinn Guðmundur Einarsson frá Miðdal stofnaði Listvinahúsið 1927. Stofnun þess markaði upphaf íslensks listiðnaðar í nútímaskilningi þess orðs. Á árunum 1946 – 1957 voru síðan stofnuð fimm ný leirmunaverkstæði í Reykjavík; Leirbrennsla Benedikts Guðmundssonar, Funi, Laugarnesleir, Roði og Glit. Þau áttu það öll sameiginlegt að nota íslenskan leir fram til um 1970. Í bókinni er saga þeirra rakin, fjallað um helstu leirlistamenn tímabilsins og verk þeirra. Leitast er við að gefa innsýn í framleiðslu verkstæðanna, en mikill listrænn metnaður einkenndi hönnun og framleiðslu leirmuna þeirra.

Fjöldi mynda prýðir bókina, en margar þeirra hafa ekki birst áður. Höfundar texta eru þær Inga S. Ragnarsdóttir, myndlistarmaður og Kristín G. Guðnadóttir, listfræðingur.

Söluaðili

Ljósabasar er haldinn á vegum fulltrúa Nýlistasafnsins til stuðnings safninu. 

Nýlistasafnið

Grandagarður 20, 101 RVK

551079-1559

nylo@nylo.is / 551-4350

 

Skilareglur

Hægt er að skila verkum sem keypt hafa verið í Ljósabasar netverslun fram til 20. desember eða 14 dögum eftir að verkið var keypt (samkvæmt lögum um neytendasamninga nr. 16/2016 ) , séu þau í sama ástandi og þau voru keypt og gegn framvísun sölukvittunar, sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Andvirði skilavöru er miðað við upprunalegt kaupsverð hennar. Söluaðili áskilur sér jafnframt rétt til að meta hvert tilfelli fyrir sig.

Þjónustuskilmálar:

Söluaðili áskilur sér rétt til að staðfesta pantanir símleiðis og jafnframt fella niður pantanir, t.d. vegna mistaka við verðlagningu, fyrirvaralaust. 

 

Afgreiðsla pantana og afhending vöru

Við reynum eftir bestu getu að afgreiða pantanir samdægurs, í síðasta lagi daginn eftir pöntun. Hægt er að nálgast verkin í Nýlistasafninu, Marshallhúsinu, Grandagarði 20, 101 Reykjavík á hefðbundnum opnunartímum safnsins, miðvikudaga-sunnudaga kl. 12-18, eða með því að hafa samband í síma 551-4350 utan opnunartíma. Einnig bjóðum við upp á útkeyrslu á verkum gegn þúsund króna sendingargjaldi til kaupenda innan höfuðborgarsvæðisins. Sé sú leið valin mun starfsmaður hafa samband við kaupanda til að ákvarða tímasetningu. Kaupandi eða staðgengill sem framvísar sölukvittun á því heimilisfangi sem gefin er upp í kaupferli verða að vera á staðnum til að kvitta fyrir mótttöku verksins. 

Varðandi pantanir erlendis frá eða utan höfuðborgarsvæðisins: Kaupendur erlendis frá eða utan höfuðborgarsvæðisins þurfa að standa straum af kostnaði við sendingu á verki. Gengið er frá sendingarfyrirkomulagi milli starfsmann Nýlistasafnsins og kaupanda í gegnum tölvupóst eða símleiðis. Við áskiljum okkur rétt til að velja dýrari sendingarmáta, tryggi það verkið betur gegn hnjaski. Verði sending fyrir tjóni á leiðinni er það á ábyrgð kaupanda. Söluaðili ber ekki ábyrgð á töllum eða aukagjöldum í viðtökulandinu. Öll aukaleg tolla-, skatta-, og innflutningsgjöld eða önnur gjöld eru á ábyrgð kaupanda.

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila. 

Privacy policy All personal information will be strictly confidential and will not be given or sold to a third party. 

Lög og varnarþing

Rísi ágreiningur milli aðila um efni þessara viðskipta eða vegna brota á þeim má bera viðkomandi mál undir Kærunefnd þjónustu og lausafjárkaupa hjá Neytendastofu. Ef allt þrýtur er heimilt að reka mál vegna þessa fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur skv. ákvæðum laga nr. 91/1991.

Governing law / Jurisdiction These terms and Conditions are in accordance with Icelandic Law.

 


Share this Product